Foreldrafélag Áslandsskóla
 
 Áslandsskóli
Forsíða
 
 Foreldrafélagið
Lög
Stjórn og nefndir
Starfsáætlun 2011 - 2012
Fundargerðir
Handbók
Ársreikningar
Foreldraráð Hafnarfjarðar
 
Skólaráð
Fulltrúar
Starfsreglur
Verkefnalisti 2011 - 2012
Fundagerðir
 
Bekkjarfulltrúar
Bekkjarfulltrúar 2011- 2012
Hlutverk
Hugmyndabanki
 
Foreldrarölt
Skipulag 2011- 2012
Framkvæmd
Kort
 
Samræmd mál
Útivistarreglur
Hjólreiðar
Tölvunotkun
Vinahópar
 
Gagnlegar upplýsingar
SMT / Agaferli
Eineltisáætlun
Skólasálfræðingur
Námsráðgjöf
Notkun á hátíðasal / kennslustofum
 
Stuðningur
Heimili og skóli
Umboðsmaður barna
Lýðheilsustöð
Saman hópurinn
Vímulaus æska
Blátt áfram
Regnbogabörn
Dyslexia
SAFT - örugg netnotkun
ADHD samtökin
 
Námið
Skólastefna Hafnarfjarðar
Krakkasíður
Unglingasíður
Aðalnámskrá grunnskóla
Námsmatsstofnun
 
Annað
Skólavefritið
Fréttir:
Aðalfundur foreldrafélagsins 8. maí kl. 20
Sæl og blessuð

Við ætlum að fagna starfi vetrarins og komu sumarsins  með nýbökuðum vöfflum og jarðarberjum á aðalfundi foreldrafélagsins nk. þriðjudagskvöld 8.maí kl. 20-21.

Dagskrá fundarins er:
1. Leifur S. Garðarsson skólastjóri fer yfir verkefni skólaráðs
2. Harpa Pálmadóttir formaður foreldrafélagsins fer yfir starfsemi vetrarins
3. Drífa Þórarinsdóttir gjaldkeri leggur fram ársreikninga til samþykktar
4. Kosning í stjórn foreldrafélagsins og nefndir
5. Önnur mál

Fundinum verður stjórnað styrkri hendi af Jóhönnu Sveinbjörgu Traustadóttur, talsmanni foreldraráðs Hafnarfjarðar. 

Komdu á fundinn og taktu þátt í umræðunni. Foreldrar geta sameinað krafta sína í foreldrafélaginu og haft jákvæð áhrif á skólastarfið eða eins og talsmaður foreldraráðs sagði í grein í Fjarðarpóstinum:

Foreldrar geta haft áhrif á gæði og gildi skólanna og eiga ekki bara að styðja við börnin og nám þeirra heldur líka við skólana sjálfa, standa vörð um það sem vel gengur og vera til leiðbeiningar um það sem betur má fara. Rödd foreldra er mikilvæg í allri umræðunni um skólamál í heild sinni og ef foreldrafélögin eru virk, heyrast raddir foreldra hátt og skýrt. Ef þú ert foreldri, skelltu þér á næsta aðalfund foreldrafélagsins, fáðu kynningu á starfseminni og taktu þátt í að hafa áhrif á nám barnsins þíns. (Sjá grein í heild sinni á vefsíðu Foreldraráðs Hafnarfjarðar: http://foreldrarad.hafnarfjordur.is, undir Ýmsar greinar).

Með bestu kveðju,
stjórn foreldrafélags Áslandsskóla
Harpa, Jóhanna, Drífa, Kristjana, Dóra, Guðbjörg, Helga og Þóra
Skráð af foreldri dags: 07 05 2012
Hverfafundur

Hverfafundur bæjarstjóra verður fimmtudaginn 26. apríl kl. 20, í Áslandsskóla.

Á fundinum verður lögð áhersla á næstu framkvæmdir í hverfunum, skipulag og uppbyggingu, skólamál, þjónustu og annað sem brennur á íbúum hverfisins.

Einnig verður kynnt niðurstaða könnunar sem gerð var meðal íbúa í Áslandi III.

Skráð af foreldri dags: 24 04 2012
Framtíð skólahalds í Áslandsskóla - Mætum á Gaflarakaffið 24.mars kl. 11-13 í Lækjarskóla‏

Foreldrafélag Áslandsskóla hvetur allt foreldrasamfélagið að mæta á Gaflaraþing laugardaginn 24. mars kl. 11.00-13.00 í Lækjarskóla og hlýða á erindi um þau málefni sem snúa að skólamálum bæjarins.

Málefni nemenda í Áslandsskóla er m.a. efst á baugi á Gaflaraþinginu (eins og fram kemur hér að neðan) því nemendum fjölgar á næstu árum í skólanum okkar og bregðast þarf við því strax í haust.

Foreldrar mætið á Gaflaraþingið og hafið áhrif á nærsamfélag ykkar. Hægt er að skila inn áliti, hvort sem þið eruð með eða á móti því sem kynnt verður á laugardag, eða tillögum bæði skriflega eða munnlega með þátttöku í umræðum á eftir erindum á laugardag.

Starfshópurinn um skólaskipan í Hafnarfirði mun fara yfir allar ábendingar og tillögur sem berast og vinna úr þeim. Þátttaka ykkar skiptir því máli.
---
Laugardaginn 24. mars er boðað til Gaflarakaffis um skólaskipan í Hafnarfirði í Lækjarskóla kl. 11-13.
Auglýsingu um málþingið er að finna í viðhengi póstsins.

Tilefni málþingsins er sérstaklega að ræða þrjú mál í skólaumhverfinu í Hafnarfirði:

1. Hvort unglingaskóli fyrir hverfi í uppbyggingu (Ásland, Vellir) komi frekar til greina en að byggja yngri barna skóla eða útibú við grunnskóla (Áslandsskóli, Hraunvallaskóli) vegna væntanlegrar fjölgunar íbúa í þeim hverfum á næstu árum.

2. 5 ára börn/deildir verði í húsnæði grunnskóla þar sem það er til staðar (Setbergsskólahverfið nefnt sem raunhæfur möguleiki nú). Þetta myndi spara leikskólabyggingar, en tryggja verður að gæði skólastarfsins verði ekki minni.

3. 2-9 ára grunnskóli verði til sem skólamöguleiki (t.d. í Engidal) frekar en að reka innan sama húsnæðis bæði leikskóla (Álfaberg) og grunnskóla (Víðistaðaskóli) svo til verði nýtt skólaform í Hafnarfirði. Kynning frá Mosfellsbæ, en þar er slíkur skóli í rekstri.

Erindi og umræður verða í málstofum til að hlusta á og heyra sjónarmið um æskilega þróun á skólaskipan fyrir árangursríkt skólastarf í Hafnarfirði.

Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Magnús Baldursson, sviðsstjóri fræðsluþjónustu í Hafnarfirði.

Skráð af foreldri dags: 22 03 2012
Foreldaraviðurkenning Foreldraráðs Hafnarfjarðar
Foreldraráð Hafnarfjarðar veitir á hverju ári foreldraviðurkenningu til aðila í skólaumhverfinu í Hafnarfirði sem þykja hafa stuðlað að auknu foreldrasamstarfi, vinna að góðum og bættum tengslum skóla og heimilis í bænum, sinnt frumkvöðlastarfi og/eða lagt sitt af mörkum við óeigingjarnt starf í þágu barna, unglinga og foreldra í Hafnarfirði.

Foreldraverðlaunin 2012 verða afhent í byrjun maí við hátíðlega athöfn. Þeir sem tilnefndir eru fá viðurkenningaskjal og sá sem hreppir foreldraverðlaunin fær verðlaunagrip frá hafnfirskum listamanni.

Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar á netfangið
foreldrarad@hafnarfjordur.is. Tekið er á móti tilnefningum til 24. apríl næstkomandi. Með tilnefningu þarf að fylgja með ástæða tilnefningarinnar í örfáum orðum.
Skráð af foreldri dags: 20 03 2012

<< Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 Eldri fréttir >>

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Áslandsskóli Hafnarfirði