Menningardagar 2011

 
Nýtt efni á netinu.

 

Culture Capsule
My World
Matartorg
 
 
 
 
 
 
sonicwall

 


Yndislestur

Nemendur í unglingadeild hafa í vetur verið duglegir í yndislestri til að auka orðaforða og lesskilning sem og njóta þeirra ævintýra sem bókin hefur upp á að bjóða. Lestrinum er skipt niður í fjórar lotur og lýkur þeirri þriðju 9. mars.

 

Í miðjum janúar fóru allir 8. bekkingar í heimsókn á Bókasafn Hafnarfjarðar og fengu góðar móttökur starfsmanna sem sýndu þeim safnið með áherslu á barna- og unglingahæð safnsins. 

Skráð af Leifur dags: 03 02 2012
Kynningin á námsframboði framhaldsskólanna

Sælir forráðamenn nemenda í 10.bekk.

 

Þrátt fyrir leiðinlega færð verður kynningin á námsframboði framhaldsskólanna haldin í dag frá kl. 17:00-18:30 fyrir nemendur í 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og foreldra þeirra.

Kynning þessi fer fram í aðalsal Flensborgarskóla. Hver framhaldsskóli verður með kynningarbás þar sem námsframboð og inntökuskilyrði verða kynnt.

 

Þeir framhaldsskólar sem verða með kynningarbás eru: Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn í Ármúla, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Hraðbraut, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Kvennaskólinn, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn og Verzlunarskóli Íslands.

 

Við hvetjum alla nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra að nýta sér þetta tækifæri en þetta er í þriðja sinn sem slík kynning fer fram í Hafnarfirði.

 

Námsráðgjafar grunnskólanna í Hafnarfirði Námsráðgjafar Flensborgarskóla

Skráð af Leifur dags: 26 01 2012
Ófærð - skólahald

Kl. 08.44

Mikil ófærð er nú í Hafnarfirði og bílar þvert á margar götur.

Foreldrar eru beðnir að halda börnum sínum heima þar til veður og færð skána.

Haft verður ofan af fyrir þeim nemendum sem komnir eru í skólann en margir starfsmanna komast ekki til vinnu sem stendur.

Skráð af Leifur dags: 26 01 2012
Nú er úti veður vont....

Fimmtudagur 26. janúar kl. 07.26

Skafrenningur er nú á höfuðborgarsvæðinu og hefur verið síðustu klukkustundirnar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað fólk við að æða af stað á illa útbúnum farartækjum.

Eflaust velta foreldra því fyrir sér hvað verður með skólahald og vil ég benda á eftirfarandi tengil  http://www.aslandsskoli.is/skolinn/tilkynningar/Ovedur%20til%20foreldra%20utg%201.pdf

Eftir á að koma í ljós hvernig starfsfólki skólans gengur að komast til vinnu og í þessum töluðu orðum er bílastæði skólans fullt af yfirgefnum ökutækjum, þó svo að hann Bragi okkar hafi reynt að hreinsa í kringum þá.

Ef einhverjar spurningar vakna mun skrifstofa skólans reyna að svara því sem hægt er.

Skráð af Leifur dags: 26 01 2012
Breyting á matargjaldi

Bæjarstjórn samþykkti við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2012 hækkun á matargjaldi í grunnskólum úr 350 kr. máltíðina í 375 kr.

Breytingin tekur gildi 1. febrúar nk.  

 

Magnús Baldursson

Sviðsstjóri fræðslusviðs / fræðslustjóri

Skráð af Leifur dags: 25 01 2012

<< Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 Eldri fréttir >>


Samvinna Ábyrgð Tillitssemi Traust