| |
|
|
|
Menningadagar |
|
Hárgreiðslupest í unglingadeild! |
|
Það var gaman á sal þegar við kíktum þangað því flautuleikararnir voru að sína lystir sínar og spiluðu fyrir okkur, svo kíktum við inn í búningsklefann hjá þeim litlu áður en þau fóru á sal með ávaxstarkörfuna , svo kíktum við á sal þegar þau voru byrjuð að flytja ávaxtarkörfuna og það vor sko sungið mikið í því leikriti, svo var rosa stuð á unglingardeildargangi því þau voru með myndbönd af þeim dansa diskó dans, svo var 10 bekkur að standa sig vel með kaffihúsið og svo gekk kennurunum líka vel að selja prjónapoka því þau eru að safna fyrir útlandaferð sem þau ætla að fara í.
Hákon Dagur Oddgeirsson Þakkar fyrir sig |
 |
Í unglingadeild er alltaf margt að gera hvert ár á menningardögunum. Inni í einni íslenskustofu er verið að gera hárgreiðslur. Allir þurfa að taka þátt í hárgreiðslunum sem eru í tíma, annaðhvort að búa þær til eða vera fórnarlamb. Allir í unglingadeild munu fara í Hárgreiðsluruglið og tekin er mynd af þeim. Þær verða svo til sýnis á morgun (menningardaginn) og er opið hús á milli 12.00-17.00 til að hlæja af þeim. Ég kíkti inn í stofuna í fyrsta tíma á miðvikudaginn og þar var fjör. Yrsa var að greiða Breka og gerði flottann hanakamb á hann . Í gær var Einar Atli með ótrúlega stórann hanakamb, hann náði mjög Hátt upp í loftið. Ég spjallaði við Arnór en hann vildi ekki láta seta eggjahvítur og hunang í hárið á sér. Meira ógeðið. Þetta er gert út af þemað er tónlist og unglingadeildin er með Diskó. Þetta eru hálfgerðar diskó hárgreiðslur.
-Ragnar |
 |
Miðdeild í stuði |
|
Skapandi krakkar í miðdeild. |
|
Margt var að gerast þegar ég kom í miðdeild sumir voru að gera þverflautur og pan flautur, að teikna fræga söngvara er vinsæld í mið deild og margir hópar að gera þetta þegar þau eru búin að teikna þá skrifa þau eitthvað um persónuna ,gera myndir við lagið Sunday bloddy Sunday ,gera myndband og myndasögur við lagið replay en aðal atriðið er að þau hjálpa við kaffihúsið og það er mjög gott og lýsir það yfir samvinnu . Þetta er mjög flott og allir ætu að skoða miðdeildina og kaffihúsið .
-Arnar |
 |
Krakkarnir eru að gera marga hluti í miðdeild t.d. vinna með lag og gera svo myndband eða teiknimyndasögu sem verður síðan skönnuð inn í tölvu og gerð að myndbandi, þau eru að vinna með lagið Replay með Iyaz og þetta verður síðan allt sýnt á morgun á menningardögum.
Í annari stofu var verið að vinna með lagi Sunday Bloody Sunday með U2 og þá voru krakkarnir að teinka myndir sem pössuðu við textann og í þeirri næstu stofu var verið að teikna upp frægar tónlistar persónur á stóran pappír og síðan eru þær málaðar og klipptar síðan út. Þau voru líka að hjálpa með kaffihúsið að teikna nótur fyrir þau á stórt blað og mála og voru líka að gera panflautur.
-Kristrún Helga. |
 |
Sköpunar séní hjá 5.-7. Bekk!! |
|
Myndskreytt karnival dýranna |
|
Eru á fullu að búa til teiknimynda sögur og myndbönd um þemað í ár. Krakkarnir í 7.bekk eru að búa til plaggöt með frægum söngvörum eins og lil wayne og eminem. Strákar í 6. Bekk voru að búa til túttu byssur sem þeim fannst svaka gaman. Svo eru Krakkar í 5. Bekk að búa til hljóðfæri eins og trommur, panflautur, skraut eins og litað vatn í flöskum, þverflautur og hristur. Svo er verið að búa til nótur til að setja upp hjá kaffihúsinu.
Viðtal:
Ég talaði við hann Inga mar í 5. Bekk grettisheimum. Ég spurði hann hvað væri uppáhalds stöðin hans og hann svaraði þegar maður var að búa til teiknimyndirnar og plaggötin svo fannst honum þetta þema bara alveg fínt og hann hlustar á rapp og djamm músík.
-Dagur |
 |
1 ,2 ,3 og 4 bekkir eru að skreyta karnival dýranna. Þau eru að teikna dýrin úr karnivalinu og mála eða lita þau svo . Í karnivalinu eru ca. . 11 dýr og þau ætla að reyna að teikna þau öll. Fyrst er lesið fyrir þau söguna og hlusta á tóndæmi og svo teikna þau ákveðið dýr sem kennarinn segir þeim að teikna. Á fimmtudaginn verða svo dýrin til sýnis . þau hafa verið dugleg að mála og hlusta á kennarann . Meðal annars voru þau búin að teikna á mánudeginum fíla og fiska og á þriðjudaginn eiga þau svo að teikna ljón og steingervinga.
-Bjarki |
.jpg) |
Ástin er diskó og lífið er pönk. |
|
Kátir krakkar í miðdeild |
|
Nóg er um að vera í unglingadeildinni á þessum menningardögum. Þau eru að gera plaköt til að skreyta skólann og plakötin eru í þemanu diskó og pönk. Þau eru líka að lífga upp á gömul föt með að breyta þeim í ný og framandi diskó og pönk föt, einnig eru þau að gera skuggamyndir af sínum prófíl og mála hann svo í öllum regnbogans litum. Unglingarnir fá líka að læra um diskó og pönk hárgreiðslurnar og fá að prófa að gera í sig hanakamba, vaffla á sér hárið og margt fleira, 10.bekkur er líka að standa sig ekkert smá vel með kaffihúsið sem þau munu sjá um á menningardögunum sjálfum.
Kristrún Helga |
 |
Mikil sköpunargleði ríkir meðal krakkana í miðdeild, þau eru að mála myndir af frægum tónlistar mönnum t.d. Bob Marley, Justin Biber, Lil Wayne og margir fleiri. Þau eru líka að búa til allskyns glæsileg og spennandi hljóðfæri t.d. trommur, hristur og flottar panflautur, eitthverskonar indíána hljóðfæri. Þau eru líka að gera fullt af verkefnum út frá lögum t.d. myndbönd, teiknimyndasögur (sem eru síðan settar inn í tölvu og gerð að myndbandi) og teikna myndir sem passa við lögin eða textann við lögin. Einnig eru þau búin að skreyta sína heimastofu með nótum og fleiru sem tengist tónlist.
Kristrún Helga |
 |
Yngri krakkarnir að klára |
|
Æfingar hjá yngri deildinni. |
|
Krakkarnir voru að æfa söng sem var mjög fallegur, eftir það þá fóru þau að klára sitt dót og fara svo að hengja upp, raða ,skrifa á miða hvað dótið er. þetta var mjög flott og allir mjög spenntir fyrri sýninguna . þar er hægt að skoða trommur, gítara, kínverska tónlistar menningu , myndir við aravísur.Á sal verður svo söngur og sýning á ávaxtarkörfunni. þetta er hægt að skoða og allan skólan.
Arnar Leó |
 |
Ég og Hjörleifur kíktum við á æfingu á sal hjá yngri deildinni og þar var aldeilis fjör. 1. Bekkur var að syngja lag um frost sem var skemmtilegt lag. Magnús bróðir minn var þarna og vinir hans. Þeir sungu hátt og skýrt og ég varð stoltur. Hjölli tók margar myndir og krakkarnir brostu á meðan. Við löbbuðum inn í sal og kíktum við á æfingu hjá 3. Bekk. Þau voru að æfa leikrit sem heitir Ávaxtakarfan. Díana var stjórnandinn og hún var, eins og venjulega mjög góð í því. Ég hlustaði á upphafslagið og það var flott. Ég mæli með því að koma að horfa á leikritið, sem fer fram á menningardaginn.
-Ragnar |
 |
Fjör og læti hjá þeim litlu.
|
|
Krakkar litlir krakkar í 3. og 4.. bekk |
|
Hjá litlu krökkunum er allt að klárast, enda er menningardagurinn á morgun. Silvía og annar kennari eru búin að kenna litlu krökkunum Indverskan jógadans. Hreyfingarnar eru mjög einfaldar og krakkarnir ná fljótt tökum á þeim. Meira að segja ég kann hreyfingarnar. Í öðrum stöðum er verið að hreifa sig í alskonar leikjum sem ég kunni ekki. Það var gaman. Á öðrum stöðum er verið að búa til hljóðfæri eins og trommur. Það er mjög einfalt. Þær eru gerðar úr skyrdósum, blaði og teygjum. Þau voru líka að búa til plastgítara úr drasli. Það var flott. Það voru líka miklu fleiri verkefni í gangi en ég fór ekki í fleiri stofur. Nú styttist í stóra daginn og allir eru mjög glaðir. Það er frábært að allir eru búnir að gera svona skemmtilegt verkefni.
-Ragnar
|
 |
Krakkarnir í 3 og 4 bekk eru að gera leiki og söng og finnst þeim það verulega skemmtilegt. Þau eru sum líka yoga og eru að gera fullt af stellingum og þau eru að gera líka að læar indverskan dans og krakkarnir eru að skemmta sér konung lega. Gítar gerðin er mjög vinsæl hjá 3 og 4 bekk, þau eru að nota tómar eldús og klóset rúllur og plast ílát af skyri. Þeim finnst það mjög skemmtilegt. Síðan eru krakkarnir að gera skólalagið í nótnatakt og eru líka að klipp og lita hljóðfæri sem eru uppi úti í enda á litla gangi.
-Kristján
|
 |
Unglingadeildin |
|
Lífið er á unglingadeildinni |
|
Margt er að gerast hjá þeim eldri hár stíll og dans, fatahönnun, veggspjöld og skuggamyndir. Kaffihúsið er að verða til búið, súkkulaðikökur voru krakkarnir að gera þegar ég leit inn til þeirra örugglega mjög góðar . í veggspjöldum er krakkar að hjálpa til við að gera sviðið fyrir ávaxtakörfuna klárt , í dans og hár stíl eru krakkarnir að greiða sér og dansa disco dans. í fatahönnun er verið að breyta fötum frá okkar tíð yfir í disco föt, skuggamyndir eru krakkar að teikna myndir af einhverjum öðrum í hópnum og breyta þeim í disco eða pönk. komið og skoðið þetta og fáið ykkur köku eða eitthvað girnilegan mat.
-Arnar |
 |
Margt er að gerast þar fatahönnun, hár og dans stíll , skuggamyndir, veggspjöld og trommur. gerðin á kaffihúsinu er í fullum gangi og það er kominn mynd hvernig það verður bakstur er á fullu þegar ég kom áðan var verið að takka pitsasnúða og góð lykt kom af þeim og allir ættu að fara þangað að fá sér kaffi og eitthvað gómsæt. brjáluð stemming er og verið að hlusta á tónlist í botni. það voru mjög fáir að á ganginum enda verða allir að ná að klára verkefni dagsinns . það verður gaman að skoða ganginn þegar allt er tilbúið á fimmtudaginn.
-Arnar |
 |
Glens og gaman hjá 5.,6 og 7 bekk |
|
Stuð í 1. og 2. bekk |
|
Það var fjör í 5, 6 og 7 bekk þegar við komum þangað fóru þau í allskyns leiki meðal annars var farið í það að teikna stjörnur og líma hausinn á og svo að mála búkinn. Svo var einn hópurinn búinn að mála búkinn sinn. Þau fóru svo að chilla og horfa á Charlie Chaplin, svo var verið að teikna frægu söng stjörnurnar, svo ver einn hópurinn að búa til pan flute , svo var einn hópurinn að teikna plaggat af ABBA og svo var einn hópurinn að skanna inn stuttmyndina sem þau voru búinn að búa til.
Fjörið byrjar greinilega hjá 5, 6 og 7 bekk!
-Hákon |
 |
Krakkarnir í 1-2 bekk eru að læra um karnival dýrin og teikna svo mynd um sitt dýr. Kakkarnir eru á fullu að æfa fyrir sýningar daginn á flautu og syngja líka. Þau skemmta sér konunglega við að búa til hljóðfæri til dæmis gítara, trommur, panflautur og hristur. Krakkarnir eru líka í leikjum eins og stóla dansi og eru líka í léttu yoga fara í einhverjar yoga stellingar eftir einhverjum sögum.
Viðtal:
Ég talaði við hann Reyni Snæ í 2 bekk Töfraheimum, ég spurði hann útí menningardaganna og honum fannst skemmtilegast að búa til gítar en í fyrra fannst honum skemmtilegast að flokka rusl. Uppáhalds músíkin hans er Michael Jackson.
-Dagur |
 |
| Glens og gaman í 1. og 2. bekk |
|
Blokkflautuæði í 2. bekk |
|
Í fyrsta og öðrum bekk er verið að gera indverskt yoga . Þau eru líka að teikna og perla sem virðist vera mjög gaman. Krakkarnir eru líka að læra um hann Stefán Jónsson (hlusta á vísur) og þau skemmta sér alveg konunglega. Síðan er önnur stöð sem er líka yoga en það er slökunar yoga krakkarnir eru ekki að fíla það en þau eru þó að skemmta sér eins og eingin sé morgundagurinn. Krakkarnir eru að gera gítar og þeim finnst það svo gaman og eru að leika sér og skemmta sér. Þeir eru að gera karnivaldýr og eru að teikna ljón og síðan eftir að þau eru búin þá eru þau sett fyrir framan bókasafnið.
-Kristján og Arnar |
 |
2. bekkur er í geggjuðu stuði og mun gera atriði á menningardaginn. Þau munu spila mergjað popplag á blokkflautu sem kallast blokklingarnir. Þeim er skipt í 4 hópa sem eru guli, rauði, græni og blái hópur. Díana tónmenntarkennari er stjórnandi blokkflautuhópsins og stendur sig með prýði. Ég fór á æfingu hjá þeim ásamt myndatökumönnum og við mynduðum krakkana. Þau voru örugglega mjög ánægð að vera í sviðsljósinu í smá tíma. Allir krakkarnir í 2. Bekk voru mjög áhugasöm fyrir tónlistarflutninginum og eiga örugglega eftir að ná langt. Við hlustuðum á lagið hjá gula og bláa hópnum og mér fannst það ágætlega spilað. Ég mæli með að fara á menningardaginn og hlusta á krakkana.
-Ragnar |
 |
| Viðtöl |
|
Viðtöl |
|
Viðtal við Yrsu: Ég talaði við hana Yrsu Rós í 9. Bekk (Ljósheimum) og spurði hana nokkrar spurningar. Henni finnst þemað í ár AWESOME!!!. Uppáhaldsstöðin hennar er hárgreiðslu stöðin og hún hlustar á rapp með Lil Wayne, 2 pac og líka techno.
Viðtal við Auði: Hvað heitir þú ? Auður Óskarsdóttir.
Hvernig finnst þér þemað í ár ? Mjög skemmtilegt og fjölbreytilegt.
Hver er uppáhalds liturinn þinn ? svartur og hvítur.
Hver er uppáhalds dygðin þín ? umhyggja.
Hver er uppáhalds þemað þín frá síðan að þú byrjaðir í skólanum ? villtra vestrið.
Hvað er uppáhalds fagið þitt ? íslenska.
Er gaman að vinna í áslandsskóla ? já, það er áhugamálið mitt! |
 |
Viðtal við Rósu Lyng: Hvað heitirðu??
Rósa Lyng
Hvað finnst þér um menningadagana??
Rosa Gaman
Hvað finnst þér skemmtilegast???
Tónlistin
Hvaða greiðsla finnst þér flottust??
Bjarka Hrafn
Viðtal við Jón Gauta: Í hvaða bekk ertu :? 9.SER Tunglheimar
Hvað er skemmtilegast: ? Sem komið komið er er fatahönnun
Hvernig tónlist hlustar þú mest á: ? Það mun vera rock and roll. |
 |
Líf og fjör á kaffihúsinu |
|
Fjör í miðdeild! |
|
Eins og vanalega er alltaf kaffihús á menningardögunum . Þar bakar 10 . bekkur vöfflur og pitsu snúða og margt fleira . 8 . 9 . 10 bekkur sjá um að hanna kaffihúsið sem verður í tónlistaþemu því það er þema menningadaganna er tónlist eins og flestir vita.
10. bekkur er búin að vera á fullu að baka í heimilisfræði stofunni og allur skólinn er farinn að anga vel af kaffihúsinu . Þegar síðast var litið inn var 10 . bekkur búinn að baka heilann helling að pitsu snúðum og mikið fleira af góðgæti.
sjálft kaffihúsið verðu á fimmtudaginn og verður opið öllum sem vilja kaupa góðgæti
-Bjarki |
 |
Krakkarnir í miðdeild voru að gera margt sumir voru að gera myndband eða teiknimyndasögu við lag með Abba aðrir voru að teikna risa málverk að frægum söngörum til dæmis: Bob Marley og will.i.am. Úlfar var að kenna krökkunum á trommur og krakkarnir voru mjög hrifnir af því . Á sumum stöðum var verið að skrifa um Queen sem er mjög góð hljómsveit.
Hljóðfæragerð er mjög sniðug hjá skólanum. Í miðdeild er flautugerð og ef krakkarnir voru búnir máttu þeir gera hvað sem þeir vildu flestir gerðu túttubyssur.
-Arnar |
 |
Margt að gera í miðdeild. |
|
Það er fjör hjá þeim litlu |
|
Miðdeildin samanstendur af 5.- 6. Og 7. Bekk. Hún skiptir sér í nokkra hópa og fer á mismunandi stöðvar. Ég, ásamt Degi fórum í alla bekkina í miðdeild og spurðum spurninga. Hjá Óla voru krakkarnir að læra um Queen og gerðu plaggat um hana. Það er aldrei sama hljómsveitin í gangi og t.d. í gær var fjallað um Pink Floyd. Í Guðnýjar stofu var verið að teikna myndir eftir skjávörpum og þar var t.d. teiknað upp Michael Jackson. Það var mjög raunverulegt. Í stofunni þar sem Einar og Brynja var verið að búa til hljóðfæri. Þau voru ekki mjög raunveruleg en það var samt flott. Það var búið til t.d. þverflautur, banjó og trommur. Það er geðveikt að vera í miðdeild.
-Ragnar
|
 |
3. og 4.bekkur voru að gera trommur úr pappírs hringjum og skreyta með öllu sem þau vilja .þegar það er búið þá setja þau bökunar pappír á og festa með teygju til að klár þessar flottu trommur.
Karnival dýrana eru alli bekkir á yngri deildinni að gera þegar ég kom var verið að gera ljón þetta ættu allir að skoða og verður sýnigin hjá bókasafninu
Gítar gerð er hjá 3 og 4 bekk er gerður úr skyrbakka sem þau mála og festa eldhúsrúllur sem handfang til að gera hljóð þá notuðu þeir teygju.
Krakkanir voru að gera gera skólasönginn með nótum og teikna upphálds hljóðfæri sín.
-Arnar |
 |
Glens og gaman í fyrsta og öðrum bekk |
|
Gaman í 1 og 2 bekkur. |
|
Fyrsti og annar bekkur voru sko í tónlistar fíling þegar þau fóru í allskyns leiki t.d. að syngja hver stal kökkunni úr krúsinni í gær, yoga stellingar eftir myndum eftir myndum, myndskreyta aravísur, teikna og lita ljónið í karnival dýrana búa til trommur sem áttu að vera bóngó trommur held ég, svo voru þau í stoppdans með kínverskri tónlist, svo voru það að búa til gítar/bassa, teikna hlóðfæri og búa til hristur. Þau virtust skemmta sér mjög vel og voru öll í diskó og pönk stuði.
-Hákon
|
 |
Ég kíkti í fyrsta og annan bekk og þar skemmtu þau sér konunglega. Þau fóru til dæmis í fíladans, hlustuðu á karnival dýranna, klipptu út fiska , klipptu út nótur og trommugerð, bjuggu til bassa, indverskan dans en ég held að þetta hafi verið einhverskonar yoga með indverskri tónlist og myndskreyttu aravísu, þau voru reyndar að borða nestið þegar við komum en við fengum að heyra aravísur hjá þeim þrátt fyrir það. Þetta virtist allt vera mjög skemmtilegt og börnin skemmtu sér mjög vel.
-Hákon |
 |
Trommumars í 10. bekk |
|
Gaman hjá 3 og 4 bekk á menningardögum. |
|
Í fyrsta tíma menningardagana er mikið um að vera. Ég fór í stofuna hennar Rósu og þar var margt í gangi. Úlfar tölvukennari er eins og flestir vita víkingur og leynir mörgu á sér. Til dæmis það að hann er svakalega flinkur á bongótrommur. Núna er hann að kenna 10 bekk trommumars sem hann stjórnar sjálfur. Allir hafa mjög mikinn áhuga á að læra á trommur og eru mjög spenntir. Úlfar heldur fyrst ræðu um reglur og hvernig á að spila á trommur. Auður íslenskukennari var líka þarna og hafði mjög mikinn áhuga. Eftir það byrja þau að spila, úff, þá urðu rosalega mikil læti.
-Ragnar |
 |
Við kíktum í 4 bekk og fylgdumst með því sem þau voru að gera, þau voru t.d. að læra Indverskt lag sem heitir Mantra og hlusta á slökunartónlist og gera æfingar og yoga. Við sáum þau gera allskonar yoga æfingar t.d. ein sem heitir arkitekt þá mynda þau einskonar þríhyrning. Einnig var 4. og 3. Bekkur að læra um kínverska tónlist og skoða gamla muni frá kína. Svo voru fleiri úr 4 og 3 bekk að búa til karnival dýranna, þau voru t.d. að teikna fiska. Við kíktum síðan á 3. Bekk, þar voru þau að búa til trommur, Syngja og í leikjum t.d. í inn og út um gluggann og myndskreyta Aravísu eftir Stefán Jónsson.
-Ragney og Halla Líf |
 |
Fjör í unglingadeild |
|
Fjör í myndmennt hjá Jónínu. |
|
| Við kíktum inn í stofuna hjá Ingvari og skoðuðum hvað var um að vera þar. Þar var unglingadeildin að störfum. Ég talaði við nokkrar stelpur og spurði þær nokkra spurninga. Þær heita Kristrún, Drífa, Brynja og Alda. Þær eru að taka alls konar gömul föt og breyta þeim í nokkurs konar diskó eða pönk föt. Það er góð stemming í stofunni en stelpunum finnst þetta ekki skemmtilegt. Stelpurnar eru í óða önn að klippa, líma og skreyta fötin. Þetta er fyrsta stöðin þeirra en þær fara í aðra eftir hádegi. Þeim hlakkar ekkert svo til fimmtudagsins en eini kosturinn við fimmtudaginn er sá að dagurinn er stuttur og það verður ekki lært heldur bara skoðað skólann og svona. Allir hérna inni í stofunni eru í góðu stuði og önnum kafinn við að breyta fötunum og hlusta á tónlistina sem er í gangi en hún er ekki beint diskó eða pönkleg heldur meira svona nýtískutónlist. |
 |
Hugrún er í myndmenntarstofunni hjá Jónínu að búa til epli. Hún teiknar epli á stórt blað og málar það svo í rauðum lit. Þetta epli er fyrir Ávaxtarkörfuna sem er leikrit sem að þriðji bekkur setur upp og er að æfa fyrir á sal skólans. Margir í myndmenntarstofunni eru að teikna, mála ávexti fyrir þetta frábæra leikrit hjá krökkunum í 3 bekk. Í sömu stofu eru Arna Rún, Jóna Elísabet, Ásdís og Yrsa Rós að búa til plötu albúm. Þær færa plötualbúmið yfir á veggspjald, þær eru með hljómsveit sem heitir Sex Pistols. Og inni í myndmenntarstofunni eru svakaleg rokklög í gangi og koma líka nokkur diskólög inná milli, krökkunum finnst bara rosalega gaman en músíkin er samt frekar mikið öðruvísi en hlustað er á nú til dags. |
 |
| Líf og fjör í yngstudeild |
|
Glens og gaman hjá 3. og 4. bekk |
|
Börnin í Höllu stofu fara í leiki og hoppa í hringi í sumum leikjum og skemmta sér vel .
Sem sagt þau byrja á því að setjast í hring í Höllu stofu og Halla útskýrir fyrir þeim leik sem þau fara í . Þegar blaðamenn litu við voru þau í leik þar sem, þau áttu að syngja og láta sem þau voru í hálfgerði flækju því þau áttu að láta alltaf einhvern í miðja flækjuna . Eftir þann leik fóru þau í leik sem flestir ættu að kannast við. Þau fóru í hver stal kökunni úr krúsinni í gær, þeim leik höfðu þau gaman af.
-Bjarki Rúnar Sigurðsson |
 |
Það var sko stuð 3 og 4 bekk þegar við komum þangað. Þau voru til dæmis að hlusta á kínverska tónlist og læra kínverska menningu, búa til trommur og mála þær síðan, svo fóru þau í stóladans, svo voru þau að mála skjaldbökuna úr karnival dýrana, svo voru þau að búa til gítar og bassa úr plasti og svo voru þau að mála gítar úr pappír og mála trommur. Þau virtust skemmtta sér alveg konunglega og voru öll í mega stuði.
-Hákon |
 |
| |
|
|
|
| |
|
|
|
| |
|
|
|
| |
|
|
|
| |
|
|
|
| |