Dagskrá framundan

7. bekkur á Reykjum í Hrútafirði

  • 29.10.2018 - 2.11.2018

Skólabúðirnar Reykjaskóla
VINÁTTA - VIRÐING - VÆNTUMÞYKJA.

Starfið í skólabúðunum á í öllum aðalatriðum að beinast að sömu markmiðum og starfið í almennum grunnskólum.
Í skólabúðunm er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi uppeldis- og félagsleg markmið og að því stefnt

- að auka samstöðu og efla samvinnu milli kennara og nemenda
- að auka félagslega aðlögun nemenda
- að þroska sjálfstæði nemenda
- að nemendur fáist við áður óþekkt viðfangsefni
- að nemendur kynnist nýju umhverfi og ólíkum lífsmáta
- að örva löngun nemenda til að athuga og rannsaka umhverfið og komast að niðurstöðu
- að auka athyglisgáfu nemenda


Eitt af markmiðum skólabúðanna er að venja nemendur við að búa fjarri foreldrahúsum, sofa á ókunnum stað, sjá um sig, hafa reglu á fötum og farangri sínum og hirða herbergið sitt. Við þetta njóta nemendur tilsagnar kennara síns og starfsfólks skólabúðanna.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is