Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

22.12.2018

Undanfarin tólf ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Fulltrúar nefndarinnar komu á jólaskemmtun í Áslandsskóla, fimmtudaginn 20. desember, og tóku við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.  Í ár söfnuðust 223.423.- krónur.

Á ellefu árum hefur skólasamfélagið í Áslandi því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 2.885.407.- krónur. Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið.

Gaman er að sjá að fleiri skólar í Hafnarfirði hafa fylgt fordæmi okkar og styrkja nú Mæðrastyrksnefnd í stað pakkaleikja.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is