Áslandsskóli og Mæðrastyrksnefnd
Við í Áslandsskóla höfum haft þann sið undanfarin tíu skólaár að hver nemandi/starfsmaður mæti með lokað umslag með frjálsu framlagi til Mæðrastyrksnefndar í stað pakkaleikja fyrir jólin.
Nemendur afhenda sínum umsjónarkennara framlag sitt föstudaginn 16. desember eða koma með það á skrifstofu skólans.
Þessi hugsun okkar tengist einni af hornstoðunum fjórum, þjónustu við samfélagið. Fjármunum verður síðan safnað saman og afhentir fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar á sal skólans þriðjudaginn 20. desember kl. 12.40
- Eldri færsla
- Nýrri færsla