• Styrkur til mæðradagsnefndar

Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

20.12.2016

Undanfarin tíu ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Fulltrúar nefndarinnar komu á jólaskemmtun í Áslandsskóla í dag, þriðjudaginn 20. desember, og tóku við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.Í ár söfnuðust 318.746.- krónur.

Á tíu árum hefur skólasamfélagið í fjallinu því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 2.417.441.- krónur. Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is