Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
Alls 2.661.984.- krónur á ellefu árum
Undanfarin ellefu ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Fulltrúar nefndarinnar komu á jólaskemmtun í Áslandsskóla, miðvikudaginn 20. desember, og tóku við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra. Í ár söfnuðust 244.543.- krónur.
Á ellefu árum hefur skólasamfélagið í Áslandi því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 2.661.984.- krónur. Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla