Blár apríl

1.4.2020

Fimmtudaginn 2. apríl höldum við Bláa daginn hátíðlegan í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfunnar. Þá eru allir hvattir til að klæðast bláu og foreldrar um leið hvattir til að ræða við og fræða börn sín um einhverfu.

Líkt og undanfarin ár er það BLÁR APRÍL - Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum. Markmið bláa dagsins er að fá landsmenn alla til að sýna einhverfum börnum stuðning sinn og fræðast um einhverfu. Með aukinni vitund og þekkingu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra, virða framlag þeirra til samfélagsins og meta fjölbreytileikann að verðleikum.

Við í Áslandsskóla tökum þátt og mætum í bláu á morgun fimmtudaginn 2. apríl og sýnum einhverfu samstöðu og stuðning.
Fögnum fjölbreytileikanum! Því lífið er blátt á mismunandi hátt!

Kær kveðja
Starfsfólk Áslandsskóla.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is