Blár dagur 6. apríl
Föstudaginn 6. apríl 2018 verður Blái dagurinn haldinn hátíðlegur í fimmta sinn.
Átakið miðar að því að fræða og upplýsa almenning um
einhverfu og auka þannig skilning, viðurkenningu og samþykki á því sem er “út
fyrir normið”. Því öll erum við einstök og höfum okkar styrkleika og veikleika
og það á við um einhverfa eins og alla aðra. Einhverfa er alls konar! Því vonum
við að nemendur og starfsfólk Áslandsskóla sýni lit með því að klæðast bláu á
bláa daginn og styrkja einhverf börn.
Fögnum fjölbreytileikanum! Því lífið er blátt á
mismunandi hátt!
- Eldri færsla
- Nýrri færsla