• bleika slaufan

Bleikur dagur föstudagurinn 16. október

14.10.2015

Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni biðjum við alla í Áslandsskóla (starfsfólk og nemendur) að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 16. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni.

Stöndum saman, mætum öll í bleiku á föstudaginn og tökum þátt í þessu átaki.

Kær kveðja
Skólastjórnendur.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is