Bolludagur og Öskudagur

12.2.2015

Ágætu nemendur og forráðamenn,

Á bolludaginn mánudaginn 16. febrúar  mega allir koma með bollur í skólann.

Öskudagur miðvikudaginn 18. febrúar er sveigjanlegur skóladagur og þá gerum við okkur dagamun.
Allir nemendur mæta í skólann þennan dag  frá klukkan 8:10 - 11:00 .
Þeir nemendur sem eru skráðir í Tröllaheima fara þangað að loknum skóladegi kl. 11:00

Við hvetjum alla til að mæta í búningum/náttfötum en við skiljum vopn eftir heima.
Nemendur í 1. og 2. bekk. bekk fara í mat klukkan 10:45
Nemendur í 3. og 4. bekk fara í mat klukkan 10:50
Nemendur í 5. til 10. bekk fara í mat klukkan 10:55

Nemendur í 1. - 7. bekk fara í frímínútur og þurfa því að koma klædd til útiveru.

Kær kveðja
Skólastjórnendur


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is