Grunnskólahátíð 2020

Miðvikudaginn 5. febrúar fer fram Grunnskólahátíð í Hafnarfirði.

4.2.2020

Miðvikudaginn 5. febrúar fer fram Grunnskólahátíð í Hafnarfirði. Sýndar verða leiksýningar frá öllum grunnskólunum í Gaflaraleikhúsinu kl. 10:00, kl. 11:30 og kl. 13:00. Um kvöldið kl. 19:00 - 22:00 fer fram ball í íþróttahúsinu við Strandgötu. Miðaverð á ballið er 3.000 kr og 200 kr í leikhúsið og miðasalan hefst miðvikudaginn 29. janúar og fer fram í félagsmiðstöðvunum í Hafnarfirði.
Á ballinu koma fram DJ Apollo, DJ Bratz, Maxi X Daxi, Club dub, Auður og sigurvegarar úr söngkeppni Hafnarfjarðar þær Áróra og Arndís frá Öldunni og Hekla Sif frá Skarðinu.

Rútur fara frá öllum skólum á ballið nema Lækjar- og Öldutúnsskóla - en unglingarnir þaðan koma sér sjálfir á staðinn. Mæting er í skólana kl. 18:00 og fara rúturnar af stað þegar allir eru komnir. Fatahengi verður á staðnum en ekki er borin ábyrgð á verðmætum og skópör verða ekki geymd í fatahenginu. Við hvetjum foreldra/forráðamenn að biðja unglinginn sinn að skilja ekki verðmæti eftir í yfirhöfnum sínum og velja skóbúnað vel því ballið er langt.
Allir unglingar fara svo í rútum heim sem byrja að keyra frá Strandgötunni um kl. 22:00.


Frí er gefið í fyrstu tveimur tímum þann 6. febrúar fyrir nemendur í unglingadeild. Mæting í skólann er kl. 9.50. Frekari upplýsingar um mætingu og fyrirkomulag fá unglingar í félagsmiðstöðinni sinni.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is