Hjól og umferðarlög
Nú er daginn tekið að lengja og þá vex umferð barna í umferðinni, bæði við leik og á leið til og frá skóla. Því er við hæfi að rifja upp nokkur atriði varðandi umferðaröryggi sem gott er að hafa í huga. Umferðarfræðsla í grunnskólum ber mestan árangur þar sem gott samstarf við heimili nemenda næst. Hlutverk heimilanna í umferðarfræðslu og forvörnum er mikilvægt því þar er mótunin sterkust.
Við hvetjum ykkur til að nýta góða veðrið og ganga eða hjóla í skólann með börnunum ykkar svo fækka megi bílum sem aka að skólanum á morgnana. Að vera börnum sínum góð fyrirmynd í umferðinni er öflugasta fræðslan ásamt því að kenna þeim um lög og reglur sem eru í gildi.
Núna fara fleiri nemendur að koma á reiðhjólum í skólann. Gæta þarf að því að öryggisbúnaður þeirra sé í lagi sem og notkun reiðhjólahjálma . Á þessum síðum er hægt að skoða fræðslumyndbönd um hjólreiðar og reiðhjólahjálma .
Athygli er vakin á að:
. samkvæmt 40. gr. umferðarlaga mega börn yngri en 7 ára ekki vera hjólandi í umferðinni nema í fylgd með 15 ára og eldri.
. eigi má reiða farþega á reiðhjóli eða rafvespu. Þó má vanur reiðhjólamaður sem náð hefur 15 ára aldri reiða barn yngra en 7 ára en ber þó að nota viðeigandi öryggissæti og búnað.
. best er að nota hjálm, það er eina vitið. Börnum yngri en 15 ára er skylt að nota reiðhjólahjálma og viðeigandi hlífðarbúnað þegar þau ferðast um á reiðhjólum, rafvespum, hjólabrettum og línuskautum.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla