Menningarhátíð 2019

Dagana 8.-11. apríl eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Gamli tíminn er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið verður með gamla tímann á fjölbreyttan hátt.

3.4.2019

Dagana 8.-11. apríl eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Gamli tíminn er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið verður með gamla tímann á fjölbreyttan hátt.

Mánudag, þriðjudag og miðvikudag stendur skóladagur yfir frá 8.10 - 13.10.

 

Fimmtudaginn 11. apríl er opið hús í Áslandsskóla frá kl. 12:00 – 17:00 en þá er sýning á afrakstri menningardaganna og á vinnu nemenda í vetur. Uppákomur verða á sal skólans og kemur nánari dagskrá síðar. Setning og fyrstu sýningar verða á slaginu 12.00. Einnig verður hið sívinsæla kaffihús á vegum 10. bekkja á efri hæðinni.

Þennan dag (fimmtudaginn 11. apríl) er ekki hefðbundið skólastarf, nemendur mæta eingöngu eftir hádegi í u.þ.b 30 til 60 mínútur og munu umsjónarkennarar senda heim upplýsingar um mætingu og skólatíma nemenda sinna þann daginn. Nemendur í 1. – 4. bekk sem verða með atriði á sal þurfa að mæta á þeim tíma en fyrir og eftir það fara þeir nemendur sem eiga dvöl í Tröllaheimum þangað, en aðrir eru á ábyrgð forráðamanna.

 

 

Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma við og aðstoða á menningardögum eru hjartanlega velkomnir. Vinsamlegast hafið samband við umsjónakennara, vegna þess.

Við hlökkum til að sjá sem flesta á sýningardaginn, bæði til að njóta þess sem boðið verður uppá og gæða sér á kræsingum á kaffihúsi elstu nemenda skólans.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is