Maí 2004

15.5.2004

Kæru nemendur og forráðamenn

Þriðja starfsári Áslandsskóla lýkur þriðjudaginn 8. júní. Þetta er jafnframt fyrsta heila starfsár mitt sem skólastjóri skólans.
Starfið hefur verið einkar ánægjulegt enda samstarf við nemendur, forráðamenn og starfsfólk með miklum ágætum.

Nú þegar sól hækkar á lofti tekur skólalífið á sig sumarbrag. Nemendur halda í námsferðir með kennurum sínum, viðtalsdagur er mánudaginn 7. júní og skólaslit 8. júní. Gaman væri að sjá sem flesta forráðamenn á skólaslitum en í lok næsta skólaárs mun Áslandsskóli útskrifa fyrsta nemendahópinn í sögu skólans.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is