Menningardagar í Áslandsskóla 2013

7.3.2013

Ágætu forráðamenn,

{nl}

Dagana 11. - 14. mars eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Borgir er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið verður á fjölbreyttan hátt.

{nl}

Mánudag, þriðjudag og miðvikudag stendur skóladagur yfir frá 8.10 - 13.20. Hefðbundinn stundaskrá gildir ekki þessa daga. 

{nl}

Fimmtudaginn 14. mars er opið hús í Áslandsskóla frá kl. 12:00 – 17:00 en þá er sýning á afrakstri menningardagana og á vinnu nemenda í vetur. Uppákomur verða á sal skólans og kemur nánari dagskrá síðar. Einnig verður kaffihús á vegum 10. bekkja á efri hæðinni.
Þennan dag (fimmtudaginn 14. mars) er ekki hefðbundið skólastarf, nemendur mæta eingöngu eftir hádegi í u.þ.b 30 til 60 mínútur og munu umsjónarkennarar senda heim upplýsingar um mætingu og skólatíma nemenda sinna þann daginn. Nemendur í 1. – 4. bekk verða með atriði á sal en eftir það fara þeir nemendur sem eiga dvöl í heildagsskólann þangað, en aðrir eru á ábyrgð forráðamanna.

{nl}


Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma við og aðstoða á menningardögum eru hjartanlega velkomnir. Vinsamlegast hafið samband við umsjónakennara, vegna þess.

{nl}

Við hlökkum til að sjá sem flesta á sýningardaginn, bæði til að njóta þess sem boðið verður uppá og gæða sér á kræsingum á kaffihúsi elstu nemenda skólans.

{nl}

Virðingarfyllst,
Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is