Fréttatilkynning

4.1.2013

{nl}

SAMFÉS og SAFT efna til samkeppni um besta barna- og unglingaefnið á netinu

{nl}

Evrópusamkeppni um besta barna- og unglingaefnið á netinu er sameiginlegt átak netöryggismiðstöðva í Evrópu og þeirra þjóða er starfa samkvæmt netöryggisáætlun Evrópusambandsins. Þetta er í annað skipti sem samkeppnin er skipulögð og mun hún fara fram í tvennu lagi:

{nl}

1. Fyrst er samkeppni á landsvísu sem fram fer í öllum þátttökulöndum. Hún er skipulögð af netöryggismiðstöðvum í hverju landi fyrir sig. Skilafrestur verkefna hérlendis er mánudagurinn 21. janúar 2013.

{nl}

2. Evrópusamkeppni fer svo fram í júní 2013 en þar etja sigurvegararnir úr landskeppnunum kappi.

{nl}

Tilgangur samkeppninnar er að vekja athygli á gæðaefni fyrir 6 til 18 ára börn og unglinga sem er nú þegar til staðar á netinu. Einnig er ætlunin að hvetja til framleiðslu á þess háttar efni. Markmiðið er að netefnið gagnist börnum á einn eða annan hátt svo sem við fræðslu og sköpun.

{nl}

Samkeppnin er opin ungmennum á aldrinum 12 til 17 ára. Samtök og fyrirtæki geta tekið þátt sem og einstaklingar eldri en 18 ára og hópar.

{nl}

Reglur um þátttöku og val verðlaunaverkefnis á landsvísu eru í höndum innlendra umsjónarmanna. Evrópusamkeppnin er einungis opin fyrir vinningshafa frá hverju landi fyrir sig. Þar verða tvenns konar verðlaun veitt. Annars vegar er um að ræða verðlaun fyrir efni frá fullorðnum og hins vegar verðlaun fyrir efni sem gert er af ungmennum.

{nl}

Helstu viðmið við val á verkefnum eru: Ávinningur fyrir viðmiðunarhóp - Hversu aðlaðandi verkefnið er – Áreiðanleiki – Notkunarmöguleikar – Markaðssetning

{nl}

SAFT1 hefur umsjón með keppninni hérlendis í samstarfi við SAMFÉS, en aðrir bakhjarlar eru: Lenovo, Microsoft á Íslandi og Síminn. Tillögur sendist á netfangið: saft@saft.is en nánari upplýsingar er að finna á http://www.saft.is/samkeppni.

{nl}

1 SAFT er hluti af aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins og starfrækja vakningarátaksverkefni, hjálparlínu og ábendingalínu með Rauða krossinum, Ríkislögreglustjóra og Barnaheill í samstarfi við ráðuneyti mennta-, innanríkis- og velferðarmála. SAFT er í samstarfi við önnur lönd í Evrópu og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og hamlar neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is