Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

20.12.2012

Eins og mörg undanfarin jól huga nemendur og starfsfólk Áslandsskóla að þeim sem minna mega sín í samfélaginu, enda ein hornstoða skólans þjónusta við samfélagið.

Í ár styrkjum við Mæðrastyrksnefnd um 104.748,- krónur.

Frá því að við hófum söfnun fyrir nokkrum árum hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar um 1.581.045,- krónur.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is