Ekki á okkar vegum....

19.12.2012

Til að fyrirbyggja allan misskilning vill félagsmiðstöðin Ásinn og Áslandsskóli koma þeim skilaboðum til foreldra unglinga að svokallað próflokaball eða nýársball sem haldið er fyrir grunnskólanemendum í Breiðholti er alls ekki í tengslum við skólann eða æskulýðsstarf bæjarins.  
Þessi atburður er aðallega auglýstur á facebook https://www.facebook.com/#!/events/388609071223650/ og miðar seldir í verslunarmiðstöð.
Þegar félagsmiðstöðin og skólinn standa að æskulýðstarfi er tryggt að börnin séu í öruggri umsjón starfsmanna allan tímann og að heimferð í hverfin sé undir þeirra umsjá í hópferðbílum.

Kveðja
Leifur S. Garðarsson skólastjóri
Axel Guðmundsson verkefnastjóri

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is