Vetrafríi og kaffispjall
Vetrafrí var þessa vikuna og vonum við að börn og fjölskyldur þeirra hafi átt það gott þessa dagana og náð að hlaða batteríin fyrir næstu vikur að jólafríi. Ýmislegt er framundan í nóvember og desember s.s. bekkjahittingur í flestöllum bekkjum skólans þar sem börn og foreldrar þeirra eiga saman notalega stund. Það eru okkar frábæru bekkjartenglar sem halda utan um bekkjarhittingana sem að öllu jöfnu eru einu sinni fyrir jól og einu sinni eftir jól. Kæru foreldrar leggið ykkar hönd á vogarskálarnar við að gera góðan bekkjaranda í bekkjum barna ykkar - góður bekkjarandi er líka á ábyrgð okkar foreldra.
{nl}Fréttir af kaffispjalli:
{nl}Á næstu vikum munu allir bekkjartenglar fá upplýsingar í tölvupósti um kaffispjall; hlutverk þess, hvernig undirbúningi er háttað og þess háttar. Stjórn foreldrafélagsins hefur ákveðið að í vetur mun kaffispjallið vera haldið einu sinni - í janúar/febrúar 2013 þar sem skammur tími er í jólafrí og tilheyrandi atburðum á aðventunni úti í samfélaginu. Þeir bekkir sem nú þegar hafa haldið kaffispjall ræða það sín á milli hvort þeir haldi ekki annað eftir áramót og eru bekkjartenglar velkomnir að hafa samband við stjórn foreldrafélagsins varðandi það.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla