Norræna skólahlaupið í Áslandsskóla

8.10.2012

Áslandsskóli tekur á fimmtudaginn næsta þátt í norræna skólahlaupinu.  Með því að smella á tengilinn hér að ofan getið þið kynnt ykkur þátttöku okkar nánar.

{nl}

 

{nl}

„Norræna skólahlaupið“ mun fara fram á öllum Norðurlöndunum nú á haustdögum. Verður þetta í 28. skiptið sem Íslendingar taka þátt í þessu samnorræna hlaupi.  Íslendingar hafa staðið sig mjög vel í samanburði við aðrar norrænar þjóðir, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hefur hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.

{nl}

Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Er því hér hvatt til þess að allir skólar verði með í Norræna skólahlaupinu 2012 en þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri og heildarúrslit verða birt í fjölmiðlum og send skólum landsins. Það skal tekið skýrt fram að hér er fyrst og fremst stofnað til hollrar hreyfingar en ekki keppni og áhersla á það lögð að allir verði með. Mjólkursamsalan, MS, hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er einnig Íþróttakennarafélag Íslands.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is