Afmælisgjöf frá foreldrafélagi skólans

19.3.2012

Fulltrúar frá Foreldrafélagi Áslandsskóla afhentu skólanum afmælisgjöf í tilefni 10 ára afmælis skólans í morgun.

{nl}

Afmælisgjöfin var þráðlaus hljóðnemi sem kemur sér sannarlega vel við hin ýmsu tilefni á sal skólans.  Skólinn ákvað reyndar að kaupa annan eins þannig að nú eru til tveir þráðlausir hljóðnemar.

{nl}

Foreldrafélagið gaf skólanum einnig gamla og nýja skólasönginn í ramma og verða þær settir upp á góðum stað á næstu dögum.

{nl}

Áslandsskóli vill færa foreldrum hugheilar þakkir fyrir afmælispakkana og hlýhug sem þeim fylgir.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is