Foreldaraviðurkenning Foreldraráðs Hafnarfjarðar
Foreldraráð Hafnarfjarðar veitir á hverju ári foreldraviðurkenningu til aðila í skólaumhverfinu í Hafnarfirði sem þykja hafa stuðlað að auknu foreldrasamstarfi, vinna að góðum og bættum tengslum skóla og heimilis í bænum, sinnt frumkvöðlastarfi og/eða lagt sitt af mörkum við óeigingjarnt starf í þágu barna, unglinga og foreldra í Hafnarfirði.Foreldraverðlaunin 2012 verða afhent í byrjun maí við hátíðlega athöfn. Þeir sem tilnefndir eru fá viðurkenningaskjal og sá sem hreppir foreldraverðlaunin fær verðlaunagrip frá hafnfirskum listamanni.
Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar á netfangið foreldrarad@hafnarfjordur.is. Tekið er á móti tilnefningum til 24. apríl næstkomandi. Með tilnefningu þarf að fylgja með ástæða tilnefningarinnar í örfáum orðum.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla