Afmælisgjöf til Áslandsskóla

17.3.2012

Í morgun fóru nokkrir stjórnarfulltrúar í skólann færandi hendi. Foreldrafélagið gaf nemendum og starfsfólki skólans þráðlausan hljóðnema og stjórnstöð með honum, einnig skólasöngvana tvo innrammaða; þann gamla og þann nýja.

{nl}

Ákveðið var að gefa hljóðnema þar sem hann mun nýtast vel í morgunstundum skólans. En þær eru mikilvægur liður í að þjálfa nemendur í framkomu og tjáningu. 

{nl}

Morgunstund gefur gull í mund. :)


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is