Skólahreysti

7.3.2012

Á fimmtudag keppir Áslandsskóli í Skólahreysti en keppnin fer að þessu sinni fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholtinu. Keppnin verður kl. 19.00 - 20.45.

{nl}

 Okkar keppendur í ár eru:
Nafn keppanda 1 (strákur) Upphýfingar/Dýfur Óliver Þór Davíðsson
Nafn keppanda 2 (strákur) Hraðaþraut Árni Kári Hafliðason
Varamaður (strákur) Einar Atli Hallgrímsson
Nafn keppanda 1 (stelpa) Armbeygjur/Fitnessgreip Silja Rós Pétursdóttir
Nafn keppanda 2 (stelpa) Hraðaþraut Kolbrún Sara Magnúsdóttir
Varamaður (stelpa) Jóhanna Guðrún Bergþórsdóttir

{nl}

Helga Huld Sigtryggsdóttir hefur séð um að þjálfa nemendur og hefur umsjón með þátttöku okkar í ár.

{nl}

Mikill hugur er í nemendum og hafa drífandi stúlkur í unglingadeild safnað styrktaraðilum sem gerir það að verkum að allir sem mæta á keppnina fá sérstak bol.  Þannig verður stuðningsliðið okkar allt í eins bolum.

{nl}

 Fríar sætaferðir verða frá skólanum kl. 18.00 en nemendur þurfa að mæta upp í skóla kl. 17.30 til að fá bol svo hægt sé að halda af stað á skikkanlegum tíma.

{nl}

 Áfram Áslandsskóli


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is