Hugsað til þeirra sem minna mega sín
Í tengslum við jólahald í skólum eru pakkaleikir á stofujólum gjarnan eitt atriðanna.Við í Áslandsskóla höfum haft þann sið undanfarin sex skólaár, að hver nemandi og hver starfsmaður mæti með lokað umslag með frjálsu framlagi fimmtudaginn 15. desember.
Nemendur afhenda umsjónarkennara sitt umslag.
Þessi hugsun okkar tengist einni af hornstoðunum fjórum, þjónustu við samfélagið.
Fjármunum verður síðan safnað saman og við lok síðustu skemmtunar á sal skólans, litlu-jólum í 6. bekk þriðjudaginn 20. desember, verður sú upphæð sem til hefur safnast afhent fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar.
Gert er ráð fyrir því að skólastjóri afhendi fulltrúa Mæðrastyrksnefndar það sem safnast um kl. 13:15 á sal skólans.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla