Morgunstund og ratleikur
Það er nóg um að vera að venju í Áslandsskóla nú þegar aðventan hefur gengið í garð.
{nl}Í gær var sameiginleg morgunstund með mörgum skemmtilegum atriðum auk þess sem veittir voru bláir fuglar fyrir háttvísi í skólastarfinu.
{nl}Í dag er fullveldisratleikur í jólasnjókomunni, skemmtilegt uppbrot á skólastarfinu.
{nl}Á morgun klæðum við Áslandsskóla í jólafötin svo við fáum að njóta skreytinganna á aðventunni áður en við förum í jólaleyfi.
{nl}Þá er rétt að geta þess að Lifandi ráðgjöf mun vera með forvarnarfræðslu fyrir foreldra nemenda í 7.-10. bekk þann 6. desember næstkomandi. Á því kvöldi mun Geir Bjarnason forvarnarfulltrúi einnig kynna fyrir foreldrum nýjustu könnun Rannsóknar og Greiningar um vímuefnanotkun ungmenna í skólahverfinu.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla