Dagur gegn einelti

8.11.2011

Áslandsskóli tekur þátt í aðgerðardegi gegn einelti en sá dagur er einmitt í dag, þriðjudaginn 8. nóvember.

{nl}

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010.

{nl}

Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.Við undirritunina verða einnig afhent gul armbönd sem gerð hafa verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina: Jákvæð samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings eftir því sem að upplag endist.

{nl}

Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sannmælast um ákveðna sátt , þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.

{nl}

Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember verður opnuð heimasíðan www.gegneinelti.isog þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:

{nl}

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti

{nl}

Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd. Við munum öll, hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

{nl}

Í nýjasta tölublaði Flórgoðans má finna útlistun á því verkefni sem nemendur Áslandsskóla vinna í tilefni dagsins.

{nl}

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is