Nýr bekkjarvefur hjá Undraheimum

20.9.2011

Velkomin á nýju bekkjarsíðuna okkar í Undraheimum. Hér verða settar inn ýmsar fréttir og myndir af skólastarfinu.

{nl}

Við erum dugleg að vinna í hringekju (stöðvavinnu). Hér til hliðar er hægt að sjá myndir af okkur.

{nl}

Í dag vorum við með fyrstu fuglaveisluna okkar.  Undraheimar söfnuðu samanlagt 224 fuglum. Allir mættu með spil og tæki og léku saman.

{nl}

Í gær byrjuðum við að læra margföldun og fengum nýja bók. Það eru allir mjög spenntir og nú er um að gera að vera duglegur að æfa sig í margföldunartöflunni heima. Æfingin skapar meistarann!


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is