Fúsi froskagleypir - tilboð til foreldra og forráðamanna í Áslandsskóla
Foreldrafélaginu barst eftirfarandi tilboð:
{nl}Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi síðasta vetur í Gaflaraleikhúsinu barnaleikritið Fúsa Froskagleypi og býðst nú foreldrum og forráðamönnum í Áslandsskóla miðar á sýninguna á afsláttarkjörum eða á kr. 1500 sem er 25% afsláttur frá venjulegu miðaverði.
{nl}Tilboðið gildir fyrir eftirfarandi sýningar:
Laugardaginn 1. október kl 14:00,
Sunnudaginn 2. október kl 14:00,
Laugardaginn 8. október kl 14:00,
Sunnudaginn 9. október kl 14:00,
Laugardaginn 15 október kl 14:00 og
Sunnudaginn 16. október kl:14:00.
Athugið að það eru ekki nema 120 sæti á hverri sýningu þannig að þær seljast fljótt.
{nl}Vinsamlegast hafið samband við Lárus Vilhjálmsson í síma 5655900 eða í 8607481 ef það er áhugi fyrir því að koma. Miðasala Gaflaraleikhússins er einnig opin frá 16-18 virka daga og frá kl 12 sýningardaga. Það er einnig hægt að panta miða beint á midasala@gaflaraleikhusid.is.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla