Af skellinöðrum, vélhjólum og rafvespum

14.9.2011

Kæru foreldrar

{nl}

 

{nl}

Nokkrir nemendur eiga skellinöðrur og koma á þeim í skólann, fleiri nemendur eiga minni vélhjól og rafvespur. Eigendur hjólanna fylgja í langflestum tilfellum lögum og reglu og gæta varúðar. Vandamál koma upp þegar nemendur fara óvarlega og/eða tækin eru lánuð öðrum nemendum sem kunna lítið á þau, eru hjálmlausir og fara ekki nógu varlega.

{nl}

Því vil ég koma á framfæri að algerlega óheimilt er að koma í skólann á ofangreindum farartækjum án þess að nota hjálm eins og lög gera ráð fyrir.

{nl}

Einnig að algerlega óheimilt er að nota þessi farartæki á skólalóðinni, af því getur skapast hætta og slys orðið.

{nl}


Við hér í Áslandsskóla höfum haft vaxandi áhyggjur af vélhjólaumferðinni og það er von okkar að með samstilltu átaki skólans og heimila getum við haldið þessum málum í öruggum og góðum farvegi.

{nl}

 

{nl}

Leifur S. Garðarsson

{nl}

Skólastjóri


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is