Starfsfólk Áslandsskóla hleypur til góðs

19.8.2011

Um 40 starfsmenn Áslandsskóla taka á morgun þátt í Reykjavíkurmaraþoni.  Skólinn hefur árlega styrkt starfsfólk til þátttöku með því að greiða þátttökugjald auk þess sem starfsfólkið hleypur í sérmerktum bolum.

{nl}

Starfsfólkið hleypur allt frá 10km upp í heilt maraþon(um 42 km).

{nl}

Hægt er að heita á hlauparana en starfsfólk skólans safnar áheitum fyrir Íþróttafélagið Fjörð í Hafnarfirði eins og undanfarin ár.  Áheitasöfnun fer fram á www.hlaupastyrkur.is

{nl}

 

{nl}

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is