SPOR Á JÖRÐU - Menningardagar 2010
Dagana 15. – 18. mars eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Spor á jörðu er þema menningardagana að þessu sinni en þá hugum við m.a. að umhverfisvitund. Nemendum er skipt í hópa og vinna þeir að ýmsum verkefnum.
Þessa daga verður ekki kennsla í leikfimi, sundi né lotum og skóladagur stendur yfir frá 8.10 - 13.30 Þeir nemendur sem eiga dvöl í Tröllaheimum fara þangað þegar skóladeginum lýkur.
ATH miðdeild- nemendur í miðdeild fara einu sinni í sund- nánar hjá umsjónarkennurum síðar.
Þessa þrjá daga þurfa nemendur ekki að vera með skólatösku, heldur litla tösku eða bakpoka. Í töskunni eiga að vera litir, skæri, lím og nesti, allt vel merkt.
Fimmtudaginn 18. mars er opið hús í Áslandsskóla frá kl. 12:00 – 17:00 en þá er sýning á afrakstri menningardagana og á vinnu nemenda í vetur. Uppákomur verða á sal skólans og kemur nánari dagskrá síðar. Einnig verður kaffihús á vegum 10. bekkja.
Þennan dag (fimmtudaginn 18. mars) er ekki hefðbundið skólastarf, nemendur mæta eingöngu eftir hádegi í u.þ.b 30 til 60 mínútur og munu umsjónarkennarar senda heim upplýsingar um mætingu og skólatíma nemenda sinna þann daginn. Nemendur í 1. – 4. bekk verða með atriði á sal en eftir það fara þeir nemendur sem eiga dvöl í Tröllaheimum þangað, en aðrir eru á ábyrgð forráðamanna.
Tröllaheimar verða opnir frá 8:00 til 17:00 þennan dag, fyrir þá sem öllu jafna nýta sér Tröllaheima, og eru forráðamenn beðnir að staðfesta skráningu á dvalartíma nemenda við skrifstofu skólans í síðasta lagi þriðjudaginn 9. mars.
Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma við og aðstoða á menningardögum eru hjartanlega velkomnir. Vinsamlegast hafið samband við umsjónakennara, vegna þess.
Við hlökkum til að sjá sem flesta á sýningardaginn, bæði til að njóta þess sem boðið verður uppá og gæða sér á kræsingum á kaffihúsi elstu nemenda skólans.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla