Kynning á námsframboði tólf framhaldsskóla

19.1.2010

Þriðjudaginn 26. janúar frá kl. 17:00-19:00 verður kynning á námsframboði tólf framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu fyrir nemendur í 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og foreldra þeirra.

{nl}

Kynning þessi fer fram í aðalsal Flensborgarskóla. Hver framhaldsskóli verður með kynningarbás þar sem námsframboð og inntökuskilyrði verða kynnt. Þeir framhaldsskólar sem verða með kynningarbás eru: Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Flensborgarskóli, Hraðbraut, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Kvennaskólinn, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands.

{nl}

Við hvetjum alla nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra að nýta sér þetta tækifæri en þetta er í fyrsta sinn sem slík allsherjar kynning fer fram í Hafnarfirði.

{nl}

 

{nl}

Námsráðgjafar grunnskólanna í Hafnarfirði

{nl}

Námsráðgjafar Flensborgarskóla


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is