Hugsað til þeirra sem minna mega sín

13.12.2009

 Í tengslum við jólahald í skólum eru pakkaleikir á stofujólum gjarnan eitt atriðanna.  {nl}

{nl}

Við í Áslandsskóla höfum haft þann sið undanfarin fjögur skólaár, að hver nemandi og hver starfsmaður mæti með lokað umslag með frjálsu framlagi miðvikudaginn 16. desember. 

{nl}

{nl}

Nemendur afhenda umsjónarkennara sitt umslag.

{nl}

{nl}

Þessi hugsun okkar tengist einni af hornstoðunum fjórum, þjónustu við samfélagið.

{nl}

{nl}

Fjármunum verður síðan safnað saman og við lok síðustu skemmtunar á sal skólans, litlu-jólum  í 6. bekk föstudaginn 18. desember, verður sú upphæð sem til hefur safnast afhent fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar.

{nl}

{nl}

Gert er ráð fyrir því að skólastjóri afhendi fulltrúa Mæðrastyrksnefndar það sem safnast um kl. 13:30 á sal skólans.

{nl}


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is