Skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkir Mæðrastyrksnefnd

19.12.2008

Nemendur og starfsfólk Áslandsskóla styrkja árlega Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar skömmu fyrir jólahátíðina.

{nl}

 

{nl}

Elísabet Valgeirsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar mætti í Áslandsskóla við lok jólaskemmtunar nemenda í 6. bekk og veitti aurunum viðtöku úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.

{nl}

 

{nl}

Styrkurinn í ár voru 180.000. - krónur en nemendur skólans sleppa árlega pakkaleik en veita þess í stað fjármuna til þeirra sem minna mega sín í samfélaginu.

{nl}

 

{nl}

Þetta er sjötta árið í röð sem þessi háttur er hafður á hér í Áslandsskóla og á þessum sex árum hafa nemendur og starfsfólk skólans safnað alls 920.410.- krónum til Mæðrastyrksnefndar.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is