Foreldradagur

20.11.2008

Foreldradagur er í Áslandsskóla föstudaginn 28. nóvember næstkomandi.  Þann dag koma forráðamenn ásamt nemendum til viðtals hjá umsjónarkennara.  Aðrir kennarar verða einnig til viðtals.

{nl}

Gott er fyrir forráðamenn að vitja óskilamuna sem munu liggja á borðum í miðrými skólans.

{nl}

Einhverjir árgangar verða beðnir að koma við í tölvustofunni og taka þátt í mati á skólastarfinu, nánar um það í viðtali hjá þeim árgöngum.

{nl}

Ef forráðamenn barna sem alla jafna eiga dvöl í heilsdagsskóla óska eftir lengri viðveru þar eru þeir beðnir að hafa samband við skrifstofu skólans hið fyrsta.

{nl}

 

{nl}

Leifur S. Garðarsson

{nl}

Skólastjóri


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is