Hlaupið til styrktar Íþróttafélaginu Firði

18.8.2008

Reykjavíkurmaraþon verður hlaupið á morgun, laugardaginn 23. ágúst.

Alls munu 24 starfsmenn Áslandsskóla taka þátt í 10 km hlaupinu sem er frábært og hefur skólastjóri verslað þar til gerða keppnisboli á mannskapinn, ásamt því sem skólinn greiðir þátttökugjald fyrir sína starfsmenn.

Þátttakendur í hlaupinu velja sér góðgerðamálefni til styrktar og munu starfsmenn Áslandsskóla allir hlaupa til styrktar Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði.

Frábær þátttaka og ekki að efa að allir verða fótfráir í fyrramálið.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is