Styttist í skólabyrjun

10.8.2008

Kæru nemendur / forráðamenn

Vonandi hefur sumarið verið ykkur ánægjuríkt við leik og störf.
Annað starfsfólk fer brátt að mæta til starfa í skólanum ásamt stjórnendum. Kennarar mæta síðan fjórum dögum fyrir skólasetningu sem er þann 22. ágúst næstkomandi.

Framundan er síðan spennandi og skemmtilegt skólaár sem við mætum af tilhlökkun og metnaði.

Nánari upplýsingar um skólasetningar koma á síðuna þegar nær dregur sem og í bæjarblöðum.

Kveðja
Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is