Íþróttadagur

28.5.2008

Íþróttadagur er í Áslandsskóla föstudaginn 30. maí næstkomandi. Þann dag bregða menn bæði undir sig betri fætinum og á leik.

Skipulögð íþróttadagskrá verður á skólalóðinni fyrir nemendur í 1.-6. bekk en íþróttakennarar munu halda utan um leiki og ýmiss konar hreyfingu.

Nemendur í 7.-10. bekk munu hins vegar ganga á Esjuna líkt og gert var í fyrra og heppnaðist geysilega vel. Mikill hugur er í fólki fyrir gönguna en auðvitað verður góður hópur starfsmanna með í för.






Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is