Hverfis- og vorhátíð Áslandshverfis

20.5.2008

Stjórn Foreldrafélags Áslandsskóla þakkar Vorhátíðarnefnd Erlendi, Maríu og Margréti, svo og Helgu Völu, Lindu og öðrum starfsmönnum Félagsmiðstöðvarinnar fyrir frábæra vinnu og veglega hverfishátíð. Þökkum einnig Hafnarfjarðarbæ fyrir þeirra framlag til þess að hátíðin gat verið veglegri en venjulega vegna 100 ára afmælis Hafnarfjarðar. Ekki má gleyma aðkomu skólans þar sem innan dyra var fullt af blöðrum sem lífguðu upp á umhverfið og einnig öll listaverk nemenda.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is