Þakkarbréf til barna og forráðamanna

20.4.2008

Kæru nemendur / forráðamenn

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff komu í heimsókn í Áslandsskóla í dag ásamt Frederik Danaprins og konu hans Mary prinsessu.

Það er skemmst frá því að segja að heimsóknin og dagskráin í kringum hana tókst frábærlega í alla staði.

Ég vil því færa ykkur nemendur kærir, þakklæti mitt fyrir framkomu og frammistöðu ykkar - þið voruð stórkostleg.


Virðingarfyllst,

Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri Áslandsskóla


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is