Samræmd próf - kynningarfundur

7.1.2008

Samræmd grunnskólapróf verða í maí næstkomandi. Nemendur og starfsfólk Áslandsskóla ganga nú í gegnum þetta ferli í fjórða skipti með 10. bekk.

Eins og annað þá viljum við að undirbúningur og próftaka takist framúrskarandi vel og boðum því til kynningarfundar þriðjudaginn 15. janúar kl. 8:10 í fyrirlestrarsal skólans. Forráðamenn og nemendur í Ægisheimum og Ásheimum eru hér með boðaðir á fundinn.

Þar munu skólastjóri, deildarstjóri, námsráðgjafi og umsjónarkennarar sitja fyrir svörum og kynna helstu atriði sem hafa ber í huga varðandi próftöku, undirbúning, val á prófgreinum, skilyrði til framhaldsnáms ásamt því að fjallað verður um mismunandi áherslur nokkurra framhaldsskóla.

Það er mikilvægara en frá þurfi að segja að vænst er þátttöku allra forráðamanna og nemenda.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is