Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd

20.12.2007

Nemendur og starfsfólk Áslandsskóla styrkja árlega Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar skömmu fyrir jólahátíðina.

Elísabet Valgeirsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar mætti í Áslandsskóla við lok jólskemmtunar nemenda í 6. bekk og veitti aurunum viðtöku úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.

Styrkurinn í ár voru 180.643. - krónur en nemendur skólans sleppa árlega pakkaleik en veita þess í stað fjármuna til þeirra sem minna mega sín í samfélaginu.

Þetta er fimmta árið í röð sem þessi háttur er hafður á hér í Áslandsskóla og á þessum fimm árum hafa nemendur og starfsfólk skólans safnað alls 740.410.- krónum til Mæðrastyrksnefndar.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is