Sameiginleg morgunstund
Næsta sameiginlega morgunstund nemenda í Áslandsskóla verður fimmtudaginn 15. nóvember.Þann morgun hittast allir nemendur skólans á sal og fjallað verður um dygð mánaðarins. Veitt verður viðurkenning fyrir háttvísasta bekk tímabilsins en sá bekkur fær bláa fuglinn, viðurkenningarskjal og bikar til varðveislu.
Forráðamenn eru velkomnir á þessa morgunstund eins og allar aðrar morgunstundir sem eru í viku hverri hjá okkur í Áslandsskóla.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla