Vorhátíð

1.5.2007

Vorhátíð foreldrafélagsins verður laugardaginn 19. maí.

Margt verður til gamans gert að venju og ljóst að hoppukastalar munu enn eitt árið heyja einvígi við pylsusala um athyglina.

Gerður hefur verið árangurstengdur þjónustusamningur við veðurguðina þar sem fyrri samningur féll úr gildi vegna rigningar í fyrra.

Nánari dagskrá verður birt á www.aslandsskoli.is þegar nær dregur.

Þess má geta að helgina á undan, laugardaginn 12. maí verður kosið til Alþingis hér í Áslandsskóla, líklega fjórar kjördeildir.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is