Skólafatnaðardagar miðvikudag og fimmtudag

30.8.2006

Skólafatnaður fyrir þetta skólaár er nú tilbúinn til mátunar og afhendingar. Flíspeysur koma frá Cintamani og buxur og bolir frá HENSON.


Mátunardagar verða miðvikudaginn 30. ágúst frá kl. 15:00 – 17:00 og fimmtudaginn 31. ágúst frá kl. 15:00 – 17:00.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að allir verða auðvitað að mæta til mátunar og pöntunar.


Við mátun fær viðkomandi pöntunarseðil. Þar er hægt að reikna út heildarverð. Pöntunarseðillinn fer síðan í möppu sem varðveitt er í skólanum.


Fyrir afhendingu þarf síðan að vera búið að leggja inn heildarupphæð á reikning 1101 – 05 – 417218 kennitala 631002-2930 í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Nafn nemanda eða kennitala hans þarf að koma fram sem skýring greiðslu. Einnig er hægt að staðgreiða við mátun – athugið að við tökum ekki debet- eða kreditkort. Við afhendingu fatnaðar á síðan að framvísa greiðslukvittun. Föt eru aldrei afhent nema búið sé að greiða fyrir þau.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is