Ásta Margrét sigraði í Stóru Upplestrarkeppninni

5.4.2006

Ásta Margrét Eiríksdóttir, nemandi í Dulheimum / 7.-SER, sigraði í lokakeppni Stóru Upplestrarkeppninnar sem haldin var í Hafnarborg í gær.

Þetta er í fyrsta skiptið sem Áslandsskóli sigrar í keppninni.

Sjöfn Ragnarsdóttir var hinn lesari Áslandsskóla í Hafnarborg og stóð sig líka frábærlega vel.

Stúlkurnar voru sér, sínum og ekki síst skólanum sannarlega til sóma.

Til hamingju kennarar, Sigga Lísa og Herborg.
Til hamingju Björk Einisdóttir fyrir ráðleggingarnar.
Til hamingju forráðamenn.
Til hamingju og takk stelpur fyrir stórkostlega stund í Hafnarborg í gær.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is