Menningardagar - viðvera á fimmtudaginn

7.3.2006

Fimmtudaginn 16. mars er opið hús í Áslandsskóla. Þá verður skólinn opinn frá kl. 12:00-17:00. Atriði verða á sal skólans auk þess sem verk verða til sýnis á göngum og í kennslustofum.
Þá verður kaffihúsið Café Ásland opið frá kl. 12:00-17:00.

Nemendur mæta ekki í skólann á venjulegum tíma eins og áður heldur fær hver bekkur nákvæmar upplýsingar frá sínum umsjónarkennara um mætingu og viðveru þennan dag.

Heilsdagsskólinn er opinn frá kl. 8:00 fyrir þá sem skráðu sig og greiddu fyrir síðustu helgi.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is